Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Skagafjarðar.
Velkomin í vefverslun sem er í eigu og rekstri Skagafjarðar kt. 550698-2349,. Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki. VSK nr. 60077.
Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við sveitarfélagið Skagafjörð.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslunina samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
- SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru kort með inneign á ákveðinn fjölda eininga.
- Kortin veita aðgang að sorpmóttökustöðvum Skagafjarðar.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort.
- NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- Hægt er að kaupa skiptakort með inneign á ákveðnu magni rúmmetra af sorpi. Eitt skipti eru 0,25 rúmmetrar.
- Fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- GJALDSKRÁ
Skagafjörður gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir sveitarfélagsins. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Skagafjarðar, www.skagafjordur.is og á viðkomandi starfsstöðum.
- SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skila né eru endurgreidd.
- VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Skagafjörður heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.
- GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
- MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota í leyfisleysi skiptakort sem skráð er á annan einstakling hefur Skagafjörður heimild til þess að loka viðkomandi korti.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.